Lokahóf yngri flokka
30.09 2015 | 3. flokkur kvennaLokahófi yngri flokka ÍA lauk fyrir skömmu í Akraneshöllinni. Þar fengu iðkendur að spreyta sig á knattþrautum og vítaskotum þar sem leikmenn meistaraflokka karla og kvenna stóðu vaktina. Veitt voru verðlaun fyrir góða frammistöðu á árinu og eftirfarandi iðkendur 3.fl kvenna fengu viðurkenningu:
Besti leikmaður : Bergdís Fanney Einarsdóttir
Efnilegasti leikmaður: Fríða Halldórsdóttir
Mestu framfarir: Dagmar Sara Bjarnadóttir
Bergdís Fanney Einarsdóttir fékk svo Stínubikarinn en það er bikar sem er afhentur efnilegasta leikmanni yngri flokka kvenna.
KFÍA vill þakka iðkendum í 3.fl kvenna fyrir góða frammistöðu og ástundun á árinu sem og foreldrum fyrir öflugan stuðning.