Lokahóf yngri flokka
30.09 2015 | 4. flokkur kvennaLokahófi yngri flokka ÍA lauk fyrir skömmu í Akraneshöllinni. Þar fengu iðkendur að spreyta sig á knattþrautum og vítaskotum þar sem leikmenn meistaraflokka karla og kvenna stóðu vaktina. Veitt voru verðlaun fyrir góða frammistöðu á árinu og eftirfarandi iðkendur 4.fl kvenna fengu viðurkenningu:
Besti leikmaður : Ásta María Búadóttir
Efnilegasti leikmaður: Erna Björt Elíasdóttir
Mestu framfarir: Selma Dögg Þorsteinsdóttir
KFÍA vill þakka iðkendum í 4.fl kvenna fyrir góða frammistöðu og ástundun á árinu sem og foreldrum fyrir öflugan stuðning.