Skagamenn heimsækja Stjörnumenn á morgun
17.07 2015Á morgun hefst seinni helmingur Íslandsmótsins í Pepsi-deild karla þegar Skagamenn heimsækja Stjörnuna á Samsungvellinum kl. 16:00. Fyrr í sumar unnu Stjörnumenn okkur á heimavelli mjög naumlega 0-1. Um mikilvægan leik er að ræða fyrir okkar menn til að halda áfram góðu gengi og koma okkur lengra frá fallbaráttunni. Skagamenn eru í 8. sæti deildarinnar eftir virkilega góðan sigur á Eyjamönnum í seinustu umferð. Stjörnumenn eru í sjötta sæti og sigla þar lygnan sjó um miðja deild.
Við hvetjum Skagamenn til þess að fjölmenna á Samsungvöllinn á morgun og hvetja þá gulklæddu til sigurs í þessum hörkuleik.